Einn kafli
Hver þáttur fylgir einum kafla svo ferðalagið verði skýrt, einfalt og auðvelt að halda áfram.
Biblían á talmáli
Ferðalag í gegnum Biblíuna, einn kafla í einu, á einföldu og lifandi máli.
Verkefnið
Í nóvember 2023 hitti ég Jesú. Ég gaf honum líf mitt og í kjölfarið las ég Biblíuna á 280 dögum.
Í dag er Biblían dagleg uppspretta andlegrar næringar í mínu lífi. Ég hef hitt marga sem langar að lesa Biblíuna en eiga erfitt með að skilja tungumálið sem hún er á.
Þess vegna ákvað ég að tala út Biblíuna út frá grunntextanum og því sem orðið talar til mín. Hver þáttur fjallar um einn kafla í Biblíunni.
Hver þáttur fylgir einum kafla svo ferðalagið verði skýrt, einfalt og auðvelt að halda áfram.
Markmiðið er að miðla orðinu á skiljanlegri, talaðri íslensku sem ungt fólk getur tengt við.
Þættirnir tengja grunntextann við það sem Guð talar inn í daglegt líf.
Um mig
Ég er fylgjandi Jesú og hef fundið hvernig Biblían getur orðið lifandi næring fyrir hjarta, huga og daglegt líf. Þetta verkefni er boð til þeirra sem vilja nálgast Biblíuna án þess að týnast í erfiðu tungumáli.
Myndir